Icelandic_Genfar-yfirlýsingin � Læknablaðinu
PDF Upload
46 LÆKNAblaðið 2018/104
W M A = W O R L D M E D I C A L A S S O C I A T I O N
Genfar-yfirlýsing Alþjóðalæknafélagsins
Samþykkt af 2. allsherjarþingi Alþjóðalæknafélagsins í Genf í Sviss í september 1948,
endurskoðað af 22. allsherjarþinginu í Sydney í Ástralíu í ágúst 1968
og 35. allsherjarþinginu í Feneyjum á Ítalíu í október 1983
og 46. allsherjarþinginu í Stokkhólmi í Svíþjóð í september 1994
og með orðalagsbreytingum 170. fundar stjórnar Alþjóðalæknafélagsins í Divonne-les-Bains í Frakklandi í maí 2005
og 173. fundar stjórnar Alþjóðalæknafélagsins í Divonne-les-Bains í Frakklandi í maí 2006
og endurskoðað af 68. allsherjarþinginu í Chicago í Bandaríkjunum í október 2017.
LÆKNISHEITIÐ
SEM LÆKNIR
HEITI ÉG ÞVÍ að helga líf mitt þjónustu í þágu mannúðar;
ÉG MUN HAFA HEILBRIGÐI og vellíðan sjúklinga minna í fyrirrúmi;
ÉG MUN VIRÐA sjálfræði og mannlega reisn sjúklinga minna;
ÉG MUN VIRÐA mannslíf staðfastlega til hins ýtrasta;
ÉG MUN EKKI LÁTA aldur, sjúkleika eða fötlun, trúarbrögð, uppruna, kyn, þjóðerni, stjórnmálatengsl,
kynþátt, kynhneigð, þjóðfélagslega stöðu eða neitt annað hafa áhrif á skyldu mína gagnvart sjúklingum mínum;
ÉG MUN GÆTA FYLLSTU ÞAGMÆLSKU um allt það sem sjúklingar trúa mér fyrir, einnig að þeim látnum;
ÉG MUN RÆKJA starf mitt af samviskusemi og virðingu og í samræmi við góða starfshætti lækna;
ÉG MUN HALDA Í HEIÐRI virðingu og góðar hefðir læknastéttarinnar;
ÉG MUN AUÐSÝNA kennurum mínum, starfsfélögum og nemendum þá virðingu og þakklæti sem þeim ber;
ÉG MUN miðla læknisfræðilegri þekkingu minni í þágu sjúklinga minna og framfara í heilbrigðisþjónustu;
ÉG MUN GÆTA VEL AÐ eigin heilsu, vellíðan og færni svo að ég fái veitt sem besta þjónustu;
ÉG MUN EKKI BEITA læknisfræðilegri þekkingu minni til að brjóta gegn mannréttindum og borgaralegu frelsi,
jafnvel þó mér sé ógnað;
ÞESSU LOFA ÉG af fúsum og frjálsum vilja og legg það við heiður minn.
Íslensk þýðing: Helga Jónsdóttir